Hitamyndun í RAPID sementi
Hér er excel skjal sem er einfalt að nota til að áætla hita og styrk í steypu með RAPID sementi.
Leiðbeiningar:
Einungis er hægt að setja inn tölur í rauðum reitum.
Forritið er eingöngu ætlað fyrir steypu með RAPID sementi.
Fyrirvari: Ýmsir þættir eins og fylliefni, íblöndunarefni o.fl. geta haft veruleg áhrif á þróun styrks og hitastigs. Ofannefndir útreikningar eru aðeins leiðbeinandi og eru ákvarðanir sem teknar eru á grundvelli áætlaðs styrks og hitastigs á eigin ábyrgð.
Við nákvæmara mat á steypustyrk er nauðsynlegt að taka mið af mælingum á hitastigi í mannvirkinu.